Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannesson
Forseti Íslands óskar eftir tillögum frá almenningi um hver ættu að hljóta Íslensku lýðheilsuverðlaunin sem veitt verða á Bessastöðum í síðari hluta apríl. Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á mikilsverðu framlagi á sviði lýðheilsu og auka með þeim hætti áhuga á bættri heilsu og líðan almennings

Forseti Íslands óskar eftir tillögum frá almenningi um hver ættu að hljóta Íslensku lýðheilsuverðlaunin sem veitt verða á Bessastöðum í síðari hluta apríl. Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á mikilsverðu framlagi á sviði lýðheilsu og auka með þeim hætti áhuga á bættri heilsu og líðan almennings.

Veitt verða verðlaun í tveimur flokkum, annars vegar til einstaklings og hins vegar til samtaka, stofnunar eða fyrirtækis sem hafa látið gott af sér leiða á þessu sviði. Almenningur er hvattur til að senda inn tillögur að verðugum verðlaunahöfum ásamt rökstuðningi á vefsíðunni lydheilsuverdlaun.is ekki síðar en 24. mars næstkomandi. Þetta verður í annað sinn sem Íslensku lýðheilsuverðlaunin eru afhent en forseti Íslands efndi fyrst til þeirra vorið 2023. Þá hlaut Snorri Már Snorrason verðlaunin í einstaklingsflokki en í flokki starfsheilda varð Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands fyrir valinu. Hátt í 350 tillögur bárust frá almenningi. Að verðlaununum standa heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis, Geðhjálp og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, auk embættis forseta Íslands.