Opið verður fyrir framtalsskil einstaklinga frá og með morgundeginum, föstudeginum 1. mars. Framtalið verður aðgengilegt á þjónustuvef skattsins skattur.is og ber öllum sem náð hafa 16 ára aldri í lok árs 2023 að skila skattframtali og telja fram

Opið verður fyrir framtalsskil einstaklinga frá og með morgundeginum, föstudeginum 1. mars.

Framtalið verður aðgengilegt á þjónustuvef skattsins skattur.is og ber öllum sem náð hafa 16 ára aldri í lok árs 2023 að skila skattframtali og telja fram. Lokaskiladagur er 14. mars og hefur fólk því hálfan mánuð til að ganga frá framtalinu.

Helstu upplýsingar um laun, fasteignir, bifreiðar, bankainnstæður, vaxtatekjur, hlutabréfaeign, arð, skuldir og fleira eru fyrirframáritaðar á framtalið. Því ættu flestir landsmenn að vera fljótir að ganga frá framtalinu.

Framtalsleiðbeiningar 2024 eru komnar á vefinn ásamt bæklingi með einföldum framtalsleiðbeiningum, að því er fram kemur í tilkynningu á heimasíðu skattsins. Þar er farið yfir helstu atriði sem einstaklingar þurfa að huga að við skil á skattframtali. sisi@mbl.is