Liverpool hefur þegar sett sig í samband við Xabi Alonso, knattspyrnustjóra Bayer Leverkusen, og látið þýska félagið vita af áhuga sínum á að fá hann til sín í sumar þegar Jürgen Klopp hættir störfum, að sögn þýska fjölmiðilsins Bild
Liverpool hefur þegar sett sig í samband við Xabi Alonso, knattspyrnustjóra Bayer Leverkusen, og látið þýska félagið vita af áhuga sínum á að fá hann til sín í sumar þegar Jürgen Klopp hættir störfum, að sögn þýska fjölmiðilsins Bild. Þar segir jafnframt að forráðamenn Leverkusen hafi hvergi látið sér bregða við þessi tíðindi. Þar sem Alonso sé fyrrverandi leikmaður Liverpool hefði það komið þeim á óvart ef Liverpool hefði ekki haft samband.