Norður
♠ ÁG10
♥ ÁK3
♦ K983
♣ 983
Vestur
♠ 4
♥ G1085
♦ G652
♣ D752
Austur
♠ 632
♥ D762
♦ D4
♣ K1064
Suður
♠ KD9875
♥ 94
♦ Á107
♣ ÁG
Suður spilar 6♠.
„Lífið er yfirfullt af glötuðum tækifærum.“ Gölturinn var í tregafullu skapi – hafði verið að horfa á „bestu spilara heims“ klúðra spili eftir spili á BBO. „Sjáið þetta,“ sagði hann hneykslaður og lagði útprent á borðið fyrir framan einkavini sína, þá Magnús mörgæs og Óskar uglu: „Sex spaðar með laufi út upp á kóng og ás.“
Fuglarnir skoðuðu stöðumyndina en sögðu fátt. Sáu ekki í sjónhendingu hvernig hægt væri að komast hjá því að gefa tvo slagi – einn á laufdrottningu og annan á tígul. Gölturinn leysti þá úr snörunni: „Þið eruð náttúrlega ekki í neinni æfingu, drengir mínir. Ég skil það. En þessir atvinnumenn sem spila daga og nætur í öllum heimshornum ættu að ráða við einfalt þvingunarinnkast. Við förum hratt niður á fjögur spil – þrjá tígla og eitt lauf. Sendum svo vestur inn á blanka laufdrottningu og látum hann opna tígulinn frá gosa þriðja.“