Pernille Harder
Pernille Harder
Pernille Harder bætti markamet sitt fyrir danska landsliðið í knattspyrnu þegar hún skoraði mark liðsins í jafntefli, 1:1, gegn Austurríki í vináttuleik á Spáni í gær. Þetta var hennar 75. mark í 148 landsleikjum

Pernille Harder bætti markamet sitt fyrir danska landsliðið í knattspyrnu þegar hún skoraði mark liðsins í jafntefli, 1:1, gegn Austurríki í vináttuleik á Spáni í gær. Þetta var hennar 75. mark í 148 landsleikjum. Danmörk og Austurríki eru tvær af fjórum þjóðum sem Ísland getur mætt í undankeppni EM. Báðar þjóðir eru í öðrum styrkleikaflokki fyrir dráttinn næsta þriðjudag, ásamt Englandi og Ítalíu, og Ísland mætir einu af þessum fjórum liðum.