Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Tilkynnt var í gær um tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2024, en verðlaunin verða afhent í Hörpu 12. mars. Flestar tilnefningar þetta árið hljóta Árný Margrét, Elín Hall, ex.girls, Laufey, Mugison og Snorri Hallgrímsson, en þau eru öll tilnefnd til þrennra verðlauna hvert.
Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum voru í ár rúmlega 900 tilnefningar sem dreifast yfir alla verðlaunaflokka. Í fyrra voru gerðar talsverðar breytingar á verðlaunaflokkum, sameinað undir stærri flokka og samræmt milli helstu yfirflokkanna. Verðlaunað er fyrir tónlistarflutning, söng, lög/tónverk og hljómplötur eða stærri verk. Nokkur verðlaun eru veitt þvert á alla flokka, s.s eins og fyrir myndbönd og viðburði. Alls er tilnefnt í 20 flokkum. Þessu til viðbótar eru á verðlaunakvöldinu veitt bæði Heiðursverðlaun og verðlaunin Bjartasta vonin. Loks er verðlaunað fyrir umslagshönnun, en þau verðlaun eru veitt í samvinnu við Félag íslenskra teiknara á svokölluðum FÍT-verðlaunum sem afhent verða seinna í mánuðinum, en tilnefningar í þeim flokki verða ekki kunngjörðar fyrr en á verðlaununum sjálfum. Alls eru verðlaunin því 23 talsins. Eftirfarandi eru tilnefningar í öllum flokkum en listann má einnig sjá í heild á iston.is og mbl.is.
Plata ársins – kvikmynda-
og leikhústónlist
Góðan daginn faggi – Stertabenda
Knock At The Cabin – Herdís Stefánsdóttir
Sikadene – Sin Fang
SILO – Atli Örvarsson
Skjálfti – Páll Ragnar Pálsson og Eðvarð Egilsson
Plata ársins – önnur tónlist
BRIDGES II – Ægir
dinner alone – Árný Margrét
I Am Weary, Don't Let Me Rest – Snorri Hallgrímsson
Rofnar – Magnús Jóhann Ragnarsson
Smurðar fórnir – Silkikettirnir
Plata ársins – djasstónlist
Farfuglar – Ingi Bjarni Skúlason
Íslendingur í Uluwatuhofi – Stefán S. Stefánsson og Stórsveit Reykjavíkur
Innermost – Mikael Máni Ásmundsson
Stilhed og storm – Sigurður Flosason
holy ghost of – hist og
Plata ársins – popp, rokk,
hipphopp og raftónlist
heyrist í mér? – Elín Hall
Verk – ex.girls
Museums – JFDR
Bewitched – Laufey
ÁTTA – Sigur Rós
Plata ársins –
sígild og samtímatónlist
Atli Heimir Sveinsson: The Complete String Quartets – Siggi String Quartet
Icelandic Works for the Stage –
Sinfóníuhljómsveit Íslands
J.S. Bach: Goldberg Variations –
Víkingur Heiðar Ólafsson
Silva – Bára Gísladóttir
Meditatio II – Schola Cantorum
Flytjandi ársins – popp, rokk, hipphopp og raftónlist
CELEBS
Daniil
Laufey
PATRi!K
Una Torfa
Flytjandi ársins – sígild
og samtímatónlist
Nordic Affect
Sæunn Þorsteinsdóttir
Strokkvartettinn Siggi
Sviðslistahópurinn Óður
Víkingur Heiðar Ólafsson
Flytjandi ársins – djasstónlist
Andrés Þór Gunnlaugsson
Kristjana Stefánsdóttir
Ari Bragi Kárason
Davíð Þór Jónsson
Stórsveit Reykjavíkur
Flytjandi ársins – önnur tónlist
Árný Margrét
Magnús Jóhann Ragnarsson
Mugison
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir
Salka Valsdóttir (neonme)
Tónlistarmyndband ársins
„Hún ógnar mér“ – Flott, leikstjórn: Þura Stína
„On Your Knees“ – Virgin Orchestra, leikstjórn: Alvin Hugi Ragnarsson
„SEVER“ – UNE MISÈRE, leikstjórn: Gunnar Ingi Jones og Óttar Ingi Þorbergsson
„Solarr“ – Talos, leikstjórn: Máni Sigfússon
„Waiting“ – Árný Margrét, leikstjórn: Guðmundur Kristinn Jónsson
Tónlistarviðburður ársins
Hátíð hirðarinnar – Afmælistónleikar Prins Póló: Minningarsjóður Svavars Péturs Eysteinssonar
Mugison í Naustahvilft – Mugison
Ómur aldanna – Hans Jóhannsson
Sumarjazz á Jómfrúnni – Jakob Einar Jakobsson og Jómfrúin
Upprásin - Harpa í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2
Upptökustjórn ársins
Modular Heart – Warmland, upptökustjórn: Arnar Guðjónsson og Hrafn Thoroddsen
Verk – ex.girls, upptökustjórn: Guðlaugur Hörðdal, Guðmundur Arnalds, Gylfi Sigurðsson og Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko
Stropha – Ingibjörg Elsa Turchi, upptökustjórn: Ingibjörg Elsa Turchi og Ívar Ragnarsson
I Am Weary, Don't Let Me Rest – Snorri Hallgrímsson, upptökustjórn: Bergur Þórisson, Cécile Lacharme, Hafsteinn Þráinsson, Martyn Heyne, Snorri Hallgrímsson, Styrmir Hauksson, Viktor Orri Árnason og Þorsteinn Eyfjörð
Knock at the Cabin – Herdís Stefánsdóttir, upptökustjórn: Herdís Stefánsdóttir og Úlfur Hansson
Texti ársins
„Ást & praktík“ – Fannar Ingi Friðþjófsson og Atli Bollason
„heyrist í mér?“ – Elín Hall
„Hún ógnar mér“ – Vigdís Hafliðadóttir
„Smurðar fórnir“ – Bergþóra Einarsdóttir
„Springur út“ – Andri Ólafsson, Friðrik Dór Jónsson, Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, Magnús Trygvason Eliassen og Steingrímur Karl Teague
Söngur ársins – djasstónlist
Rebekka Blöndal
Kristjana Stefánsdóttir
Silva Þórðardóttir
Steingrímur Teague
Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Söngur ársins – sígild og samtímatónlist
Jóhann Kristinsson
Benedikt Kristjánsson
Bryndís Guðjónsdóttir
Hrólfur Sæmundsson
Heiða Árnadóttir
Söngur ársins – popp, rokk, hipphopp og raftónlist
Elín Hall
JFDR
Laufey
Friðrik Ómar
Una Torfa
Tónverk ársins – djasstónlist
Íslendingur í Uluwatuhofi – Stefán S. Stefánsson
Suddenly Autumn – Sunna Gunnlaugs
The Raccoon and the Dog – Mikael Máni Ásmundsson
daggermark – Eiríkur Orri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen og Róberta Andersen
Springur út – Andri Ólafsson, Friðrik Dór Jónsson, Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Magnús Trygvason Eliassen
Tónverk ársins – sígild
og samtímatónlist
COR – Bára Gísladóttir
Rituals – Anna Þorvaldsdóttir
Á þessum kyrru dægrum – Tryggvi M. Baldvinsson
Jörð mistur himinn – Haukur Tómasson
Liebster Gott wann werd ich sterben? – Hjalti Nordal
Lag ársins – önnur tónlist
„Godzilla“ – Nanna
„I Am Weary, Don't Let Me Rest“ – Snorri Hallgrímsson
„Inside Weather“ – Jelena Ciric
„Stóra Stóra Ást“ – Mugison
„Wandering Beings“ – Guðmundur Pétursson
Lag ársins – popp, rokk,
hipphopp og raftónlist
„Hvítt vín“ – Spacestation
„Manneskja“ – ex.girls
„Oral“ – Björk og ROSALÍA
„Parísarhjól“ – GDRN
„Skína“ – PATRi!K, Luigi