Franski knattspyrnumaðurinn Paul Pogba var í gær úrskurðaður í fjögurra ára keppnisbann í kjölfar þess að hann féll á lyfjaprófi eftir leik með Juventus í ítölsku A-deildinni í ágúst. Pogba lýsti því yfir strax og úrskurðurinn lá fyrir að hann hefði …
Franski knattspyrnumaðurinn Paul Pogba var í gær úrskurðaður í fjögurra ára keppnisbann í kjölfar þess að hann féll á lyfjaprófi eftir leik með Juventus í ítölsku A-deildinni í ágúst. Pogba lýsti því yfir strax og úrskurðurinn lá fyrir að hann hefði ekki vitað til þess að hann hefði gert neitt ólöglegt og kvaðst ætla að áfrýja málinu til Alþjóðaíþróttadómstólsins. Pogba verður 31 árs síðar í þessum mánuði en hann varð heimsmeistari með Frökkum árið 2018.