Kristján Örn Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, gengur í raðir danska félagsins Skanderborg í sumar, en hann hefur undanfarin ár leikið með Aix í Frakklandi. Kristján verður samningslaus eftir leiktíðina og Århus Stiftstidende greinir frá að næsti áfangastaður skyttunnar verði Skanderborg
Kristján Örn Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, gengur í raðir danska félagsins Skanderborg í sumar, en hann hefur undanfarin ár leikið með Aix í Frakklandi. Kristján verður samningslaus eftir leiktíðina og Århus Stiftstidende greinir frá að næsti áfangastaður skyttunnar verði Skanderborg. Hann hefur ekki leikið undanfarnar vikur vegna meiðsla í öxl. Skanderborg er sem stendur í tíunda sæti af fjórtán liðum í dönsku úrvalsdeildinni.