Hildigunnur H.H. Thorsteinsson hefur verið skipuð nýr forstjóri Veðurstofu Íslands til næstu fimm ára, en skipun hennar tekur gildi frá og með 1. júní. Greint er frá skipuninni á vef Stjórnarráðsins. Tekur hún við af Árna Snorrasyni, sem hættir vegna aldurs en hann hefur gegnt starfinu frá 2010.
Er Hildigunnur önnur konan í sögunni til að stýra Veðurstofu Íslands. Teresía Guðmundsson var veðurstofustjóri frá 1946 til 1963 og var hún jafnframt fyrsta konan í heiminum til að verða veðurstofustjóri.
Hildigunnur er með BSc-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og lauk MSc-gráðu í Technology and Policy frá Massachusetts Institute of Technology árið 2008. Hún hefur starfað sem Chief Technical Officer hjá Innargi A/S í Kaupmannahöfn frá 2022. Starfaði sem verkfræðingur hjá Enex í Reykjavík á árunum 2005-2006 og sem verkefnastjóri hjá Iceland America Energy Inc. í Los Angeles 2008-2009.
Hildigunnur var tæknistjóri í orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna í Washington árin 2009-2011 og síðar teymisstjóri á jarðvarmasviði í sama ráðuneyti 2011-2012. Árið 2013 tók hún við stöðu framkvæmdastýru rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur og sinnti því starfi til ársins 2022.
Embætti forstjóra Veðurstofu Íslands var auglýst í nóvember og sóttu átta um embættið, segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.