Ævintýri Breska leikkonan Millie Bobby Brown er gjörn á að lenda í ævintýrum, alltént á skjánum og hvíta tjaldinu. Margir tengja hana við hina dularfullu þætti Stranger Things en í sinni nýjustu kvikmynd, Damsel, leikur Brown unga konu sem áttar sig á því eftir draumabrúðkaupið með fögrum prins að fórna á henni á altari dreka nokkurs, þannig að viðhalda megi þeim undarlega sið konungsveldisins að drepa ungar og siðprúðar stúlkur. Elodie prinsessa, eins og karakterinn heitir, neitar þó að leggjast niður og gefast upp og bregst af fimi til varna. Leikstjóri er Juan Carlos Fresnadillo og Damsel má nálgast á Netflix frá og með 8. mars.