Mario Matasovic, króatíski körfuknattleiksmaðurinn hjá Njarðvík, gæti misst af því sem eftir er af yfirstandandi tímabili. Matasovic meiddist á ökkla á dögunum, er ekki brotinn en illa tognaður, og ljóst að um einhverra vikna fjarveru verður að ræða hjá honum
Mario Matasovic, króatíski körfuknattleiksmaðurinn hjá Njarðvík, gæti misst af því sem eftir er af yfirstandandi tímabili. Matasovic meiddist á ökkla á dögunum, er ekki brotinn en illa tognaður, og ljóst að um einhverra vikna fjarveru verður að ræða hjá honum. Njarðvíkingar eiga fimm leiki eftir í úrvalsdeildinni á næstu fimm vikum. Þá hefst úrslitakeppnin í apríl og þar yrði mikið áfall fyrir Njarðvíkinga að vera án Króatans.