Hrólfur Hraundal
Fyrir þremur árum pöntuðum við feðgar tvö reiðhjól frá Englandi með rafbúnaði til að létta okkur ferðir um brekkubæinn Neskaupstað, og var pöntun þessi stíluð á nafn sonar míns Bergs og þar með götuheiti og húsnúmer, 740 Neskaupstað, og var þessi pöntun greidd þá þegar. Þar sem breski hjólakaupmaðurinn var velvakandi og átti bara eitt hjól af þeirri gerð sem við pöntuðum, þá áframsendi hann pöntun snarlega til birgja sinna í Kína og sagði okkur frá því þá þegar.
Eftir þrjá mánuði frá pöntun fórum við að kanna hvar þessi sending væri og því var hringt í breska hjólakaupmanninn og fengum við þær fréttir að ekki hefðu verið liðnar fimm vikur frá því að pöntun var gerð þar til sendingin var komin til Reykjavíkur frá Kína. Það voru tveir mánuðir síðan þessi sending kom til Reykjavíkur og var hann undrandi á því að við hefðum ekki fengið tilkynningu þar um og svo var og um okkur!
Eftir það sem síðar hefur gerst erum við hættir að vera hissa. Þó tókst einhverjum embættismanni að slæma klónum í þessa sendingu og þar með voru þessi reiðhjól gerð upptæk vegna vöntunar á upprunavottorði. Það er raunar sorglegt að íslenskir embættismenn skuli vera svona vankunnandi í þeim málum sem þeir eiga að þekkja.
Bergur hringdi í kínverska sendiráðið og spurði hvernig hann gæti fengið upprunavottorð vegna reiðhjóla frá Kína. Því var fljótlega svarað að upprunavottorð varðandi reiðhjól væru ekki til og hefðu ekki verið til.
Allar leiðir Samgöngustofu varðandi þetta mál hafa síðan verið á villigötum, en á hvers konar götum skyldu samskipti samgöngustofustjóra og tollstjóra vera? Ekki veit ég en fékk á tilfinninguna að þar væri ekki allt sem skyldi og biðst velvirðingar á þessu áliti sé það rangt. Við feðgar teljum að þessi hjól henti vel hér á okkar vindasama fjallalandi.
Bergur sonur var í Póllandi í maí 2023 og sá þar sams konar hjól og einhverjir íslenskir embættismenn gerðu upptæk án þess svo mikið sem láta okkur vita. Þau pólsku voru númerslaus en Samgöngustofa krafðist þess að hjólin okkar yrðu með númerum, en þá vandaðist málið því að þetta eru reiðhjól og þeim fylgja ekki upprunavottorð og þar með hefur ESB-trúarofsi Samgöngustofu gert þetta mál ómögulegt og óframkvæmanlegt.
Var einhver að tala um loftslagsmál og orkuskipti? Hafi svo verið þá er það gersamlega ómarktækt hjal þegar ekki er einu sinni hægt að kaupa sér reiðhjól með rafhjálparafli til að minnka prumpið í brekkum.
Bergur leitaði því uppi reiðhjólaverslun í Póllandi sem átti sams konar hjól og Samgöngustofa gerði upptæk og lét engan vita. Hann ákvað að kaupa svona hjól, en vildi fá upprunavottorð með því. Pólski hjólakaupmaðurinn sagði honum það sama og kínverska sendiráðið og breski hjólakaupmaðurinn, sem sé að upprunavottorð eru ekki til með reiðhjólum frekar en garðsláttuvélum, ryksugum og hjólbörum, enda komast þessi hjól ekki nema 25 km á klukkustund.
Þegar liðið var á þriðja ár frá upphafi þessa máls stóð æðstaráð Samgöngustofu upp úr stólnum til þess að athuga hvað hæft væri í máli okkar og komst hann að því að þetta væru reiðhjól sem ekki þyrfti að skrá með númerum og þar með þarf ekkert upprunavottorð. Síðan sagði hann sig frá þessu máli og tók þá við æðstaráð tollamála og taldi sá að hentugast væri að farga þessum hjólum.
Hann er ekki mikilsmetinn eignarrétturinn af þessum herrum samgöngu- og tollamála, en þannig hefur það oft verið þar sem einræði hefur verið lofað að þróast án eftirlits. Það fylgir leiðbeiningabæklingur með öllum upplýsingum um þessi hjól og upprunavottorð myndi þar engu við bæta. Veit einhver hver hefur boðvald yfir samgöngu- og tollamálum?
Samkvæmt almennum siðareglum myndi ærlegur embættismaður biðjast afsökunar á að hafa tekið eign annars manns til að þjóna duttlungum sínum í þrjú ár. Allar ábyrgðir sem fylgdu þessum hjólum eru löngu fyrir bí, þökk sé Samgöngustofu og/eða tollstjóra.
Það er því ljóst að samgöngustofufólk þarf að læra betur sem og hinn hrokafulli tollstjóri, sem telur eigin skinni best borgið með förgun.
Höfundur rak vélsmiðju í Grundarfirði, nú eldri borgari í Neskaupstað.