Ný lög Sækja má nú fólk til saka í Alabama fyrir að eyðileggja fósturvísa.
Ný lög Sækja má nú fólk til saka í Alabama fyrir að eyðileggja fósturvísa. — Colourbox
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Anna Rún Frímannsdóttir annarun@mbl.is Einhverjir hafa eflaust fylgst með fréttum af því þegar hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu 16. febrúar að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá.

Baksvið

Anna Rún Frímannsdóttir

annarun@mbl.is

Einhverjir hafa eflaust fylgst með fréttum af því þegar hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu 16. febrúar að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá.

Þá hefur um tugur ríkja í Bandaríkjunum nú sett lög sem byggjast á þeirri skilgreiningu að barn verði til strax við getnað en Alabama er fyrsta ríkið sem ákveður að fósturvísir sé manneskja. Hefur þetta meðal annars leitt til þess að öllum tæknifrjóvgunum hefur verið frestað á stærsta sjúkrahúsi Alabama þar sem sjúkrahúsið vill vernda starfsfólk fyrir málsóknum því refsiábyrgð getur skapast eyðileggist vísarnir fyrir slysni. Úrskurðurinn bannar þó alls ekki tæknifrjóvgun en hins vegar er raunin sú að yfirleitt eru ekki allir fósturvísar sem frystir eru notaðir. Það að þeir séu nú skilgreindir sem börn vekur ýmsar spurningar um hvernig megi umgangast þá og geyma.

Sjúklingur eyðilagði fósturvísa

Upphaf dómsmálsins má rekja til þess þegar þrjú pör fengu ekki tæknifrjóvgun eftir að fósturvísar þeirra eyðilögðust. Í ljós kom að sjúklingur hafði ráfað inn á rannsóknarstofu, þar sem vísarnir voru geymdir, og eyðilagt þá með því að handleika vísana og missa þá. Var málið sótt á grundvelli laga í Alabama um ofbeldi gegn börnum sem leitt getur til dauða.

Ná þau lög yfir fóstur en í þeim eru fósturvísar hins vegar ekki tilgreindir sérstaklega. Málið varðaði því spurninguna hvort sækja mætti sjúklinginn, sem eyðilagði fósturvísana, til saka fyrir manndráp. Var svar dómstólsins á þá leið að vissulega væri hægt að gera viðkomandi ábyrgan. Það hefði lengi verið afstaða dómstólsins að „ófædd börn væru börn“ og það sama ætti við um frosna fósturvísa.

Setur viðkvæma sjúklingahópa í erfiða stöðu

Ýmsir sérfræðingar hafa sagt niðurstöðuna grafa undan tæknifrjóvgun og skapa mikla óvissu fyrir mikinn fjölda fólks sem glímir við ófrjósemi. Þá hafa áhyggjur meðal annars vaknað vegna fólks í viðkvæmri stöðu, þar á meðal sjúklinga í krabbameinsmeðferðum þar sem krabbamein getur ógnað frjósemi.

Dr. Kara Goldman, dósent í innkirtlafræði og ófrjósemi við Northwestern University Feinberg School of Medicine og forstöðumaður frjósemisverndar hjá Northwestern Medicine, er ein þeirra sem hafa tjáð sig um málið en hún telur úrskurðinn svipta sjúklinga með krabbamein, og aðra sjúkdóma sem ógnað geta frjósemi, þeim möguleika að stofna fjölskyldu.

„Krabbameinssjúklingar á barneignaraldri hafa haft þann möguleika að varðveita frjósemi sína með því að frysta fósturvísa. Það er óskiljanlegt að slíkur valkostur sé tekinn frá þessum hópi sem er þegar í viðkvæmri stöðu,“ er haft eftir Goldman á heimasíðu Northwestern.

„Sjúklingar með krabbamein hafa einungis þröngan tímaramma til að varðveita frjósemi sína áður en þeir hefja krabbameinsmeðferð. Í flestum tilfellum hefja þeir frjósemismeðferð nánast strax eftir að þeir fá krabbameinsgreiningu,“ segir Goldman og bætir því við að ferðalög á milli ríkja til að sækja sér slíka þjónustu séu ekki valkostur. Segir hún fólk verða að vera nærri læknateymi sínu bæði vegna sérhæfðrar umönnunar og kostnaðar. Tekur hún fram að afleiðingar úrskurðarins séu því gríðarlegar fyrir þennan hóp en niðurstaða dómstólsins í Alabama mun óhjákvæmilega hafa ýmsar afleiðingar í för með sér og gera ákvarðanir í tengslum við tæknifrjóvgun erfiðar. Fram að þessu hefur til að mynda tíðkast að búa til nokkra fósturvísa í einu, bæði til að auka líkur á þungun en einnig til að grípa til síðar. Nú þarf fólk hins vegar ekki einungis að ákveða hvað á að gera við ónotaða fósturvísa heldur á það á hættu að verða sótt til saka ef það ákveður að farga þeim.

Hæstiréttur hvattur til að endurskoða ákvörðun sína

Í framhaldinu hafa hópar, sem í eru fulltrúar lækna og sjúkrahúsa í Alabama, hvatt hæstarétt ríkisins til að endurskoða þessa ákvörðun. Lögð var fram skýrsla á vegum Læknafélagsins og Sjúkrahússamtakana í Alabama um endurupptökubeiðni í málinu, en sú skýrsla hefur vakið alþjóðlega athygli.

Dómstólar verða ekki oft við slíkum beiðnum en samtökin héldu því fram að úrskurðurinn hefði víðtækar afleiðingar þar sem frjósemisstofur í Alabama þyrftu að gera hlé á þjónustu sinni. Tóku þau einnig fram að úrskurðurinn væri skaðlegur fyrir læknasamfélagið:

„Margir upprennandi foreldrar munu ekki geta eignast börn vegna þessa dóms. Þetta er því harmleikur sem nær víðs vegar um Alabama.“