1. e4 c6 2. c4 d5 3. cxd5 cxd5 4. exd5 Rf6 5. Da4+ Rbd7 6. Rc3 g6 7. Rf3 Bg7 8. Bc4 0-0 9. d3 a6 10. Da3 b6 11. 0-0 Bb7 12. He1 b5 13. Bb3 He8 14. Be3 Rb6 15. d6 exd6 16. Rg5 Rbd5 17. Rxf7 Kxf7 18. Bg5 He5 19. Bxf6 Bxf6 20. d4 Hf5 21. Bxd5+ Bxd5 22. Rxd5 Bxd4 23. He7+ Kg8 24. Dh3 Bg7 25. Hae1 He5
Staðan kom upp á EM í hraðskák sem fór fram fyrir skömmu í Zagreb í Króatíu. Georgíski stórmeistarinn Baadur Jobava (2.599) hafði hvítt gegn úkraínska ungstirninu Ihor Samunenkov (2.473). 26. H1xe5! dxe5 27. Rf6+! Kf8 28. He8+ Dxe8 29. Rxe8 Hxe8 30. Da3+ Kg8 31. Dxa6 b4 32. Dc4+ og svartur gafst upp. Samunenkov var útnefndur stórmeistari á þriðja ársfjórðungi 2023 og var þá 14 ára, þriggja mánaða og 15 daga gamall. Hann er á meðal þeirra yngstu sem fengið hafa nafnbótina og er í dag yngsti stórmeistari heims.