Norður
♠ 8743
♥ ÁKD5
♦ ÁKG
♣ D7
Vestur
♠ KDG105
♥ 94
♦ 73
♣ G642
Austur
♠ 92
♥ G1063
♦ D84
♣ K983
Suður
♠ Á6
♥ 872
♦ 109652
♣ Á105
Suður spilar 3G.
Eftir langvinnt skrölt á netinu datt Gölturinn niður á ævintýralegt varnarspil, sem hann taldi víst að myndi gleðja fuglana – 3G með spaðakóng út. Suður dúkkar, fær næsta slag á spaðaás og svínar tígulgosa. „Nú er að sjá hvað þið eruð liðugir.“
Magnús mörgæs tók strax við sér: „Ég spila laufkóng – ræðst á innkomuna áður en sagnhafi nær að afblokka tígulinn.“
„Rétt, en bara byrjunin,“ svaraði Gölturinn. „Þú færð að eiga slaginn.“
„Ég skil,“ sagði Magnús eftir nokkra athugun: „Það á að henda mér inn á fjórða hjartað. Það mun aldrei verða. Ég geymi hjartaþristinn fram í rauðan dauðann og makker fær tvo síðustu slagina á spaða.“
„Þetta eru miklir fimleikar,“ sagði Óskar ugla íbygginn: „Afturábak heljarstökk með tvöfaldri skrúfu.“