Handknattleiksmaðurinn Oddur Gretarsson ætlar að flytja heim í sumar en hann hefur leikið undanfarin ellefu ár sem atvinnumaður í Þýskalandi, með Balingen síðustu sjö árin. Oddur staðfesti þetta við Handbolta.is í gær og kvaðst ætla að spila með…
Handknattleiksmaðurinn Oddur Gretarsson ætlar að flytja heim í sumar en hann hefur leikið undanfarin ellefu ár sem atvinnumaður í Þýskalandi, með Balingen síðustu sjö árin.
Oddur staðfesti þetta við Handbolta.is í gær og kvaðst ætla að spila með íslensku liði á næsta keppnistímabili en ekki væri ákveðið hvar það yrði. Hann er Akureyringur og lék með Þór og liði Akureyrar þar til hann flutti til Þýskalands árið 2013.