Umræða Jón Gunnarsson, fv. dómsmálaráðherra, kvaddi sér hljóðs.
Umræða Jón Gunnarsson, fv. dómsmálaráðherra, kvaddi sér hljóðs. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Ég óttast tafaleiki við vinnslu málsins. Það er að mínu mati ekki í boði að ekki verði brugðist við ástandinu núna með því að breyta lögunum á þessu kjörtímabili, á þessu þingi,“ sagði Jón Gunnarsson, alþingismaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra, í ræðu á Alþingi í gær

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

„Ég óttast tafaleiki við vinnslu málsins. Það er að mínu mati ekki í boði að ekki verði brugðist við ástandinu núna með því að breyta lögunum á þessu kjörtímabili, á þessu þingi,“ sagði Jón Gunnarsson, alþingismaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra, í ræðu á Alþingi í gær.

Þar viðraði hann áhyggjur sínar af framgangi útlendingafrumvarps dómsmálaráðherra sem nú er til meðferðar í allsherjar- og menntamálanefnd.

„Það er ekki svigrúm að mínu mati til frekari málamiðlana um þetta mál,“ sagði Jón og vísaði þar til málflutnings Vinstri grænna í málinu, en Orri Páll Jóhannsson, formaður þingflokks VG, greindi frá því í ræðu á Alþingi á mánudag að flokkurinn setti nokkra fyrirvara við frumvarpið.

„Ég hef áhyggjur af afstöðu og málflutningi þingmanna og ráðherra Vinstri grænna. Ég heyri að forsætisráðherra segir mikilvægt að nálgast Norðurlöndin í regluverki. Það er sama nálgun sem við sjálfstæðismenn erum með, en á sama tíma talar félagsmálaráðherra um að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins séu stöðugt að stilla Vinstri grænum upp við vegg í þessum mikilvæga málaflokki,“ sagði Jón.

„Þetta eru allt saman mjög brýnar breytingar og í einhverjum tilfellum þyrfti eflaust að ganga lengra,“ sagði hann.

„En dropinn holar steininn og við í Sjálfstæðisflokknum höfum aldrei gefist upp við að ná fram breytingum á þessu máli. Það tókst í fyrra. Nú erum við í kafla tvö og við fögnum auðvitað stuðningi þeirra þingmanna sem tjáðu sig hér og bjóðum þá velkomna um borð í vegferð Sjálfstæðisflokksins í málaflokki útlendingamála,“ sagði Jón.

Hann vék einnig að Viðreisn og Samfylkingunni í ræðu sinni og sagði áhugavert að bera umræðuna um útlendingamálin nú saman við umræðu um málið á síðasta ári.

„Mest áberandi er sá mikli viðsnúningur sem hefur orðið í málflutningi þingmanna Viðreisnar og svo aumlegar skýringar á breyttri afstöðu. Hjá þingmönnum Samfylkingarinnar kemur fram augljós ágreiningur innan flokksins og verður fróðlegt að fylgjast með því á næstu vikum hvernig afstaða þeirra verður til þessa mikilvæga máls,“ sagði Jón Gunnarsson.

Höf.: Ólafur E. Jóhannsson