Heim Oddur Gretarsson kveður Balingen eftir sjö ára dvöl.
Heim Oddur Gretarsson kveður Balingen eftir sjö ára dvöl. — Ljósmynd/Balingen
Handknattleiksmaðurinn Oddur Gretarsson hefur skrifað undir samning við uppeldisfélagið Þór á Akureyri og mun leika með því frá og með næsta tímabili. Hann hættir hjá Balingen í Þýskalandi í vor eftir sjö ár með liðinu en Oddur hefur leikið sem atvinnumaður í Þýskalandi undanfarin ellefu ár

Handknattleiksmaðurinn Oddur Gretarsson hefur skrifað undir samning við uppeldisfélagið Þór á Akureyri og mun leika með því frá og með næsta tímabili. Hann hættir hjá Balingen í Þýskalandi í vor eftir sjö ár með liðinu en Oddur hefur leikið sem atvinnumaður í Þýskalandi undanfarin ellefu ár. Þórsarar leika í 1. deild og eru þar í fjórða sæti en í baráttu um að komast upp í úrvalsdeildina. Oddur lék með Þór og liði Akureyrar áður en hann fór til Þýskalands.