— Morgunblaðið/Eggert
Vel gengur að setja upp útveggjaeiningar á nýjan meðferðarkjarna við Hringbraut. Vesturhluti hússins er farinn að taka á sig góða mynd. Verkið er háð veðrum og vindum en þegar best lætur fara upp allt að 100 einingar í hverri viku

Vel gengur að setja upp útveggjaeiningar á nýjan meðferðarkjarna við Hringbraut. Vesturhluti hússins er farinn að taka á sig góða mynd. Verkið er háð veðrum og vindum en þegar best lætur fara upp allt að 100 einingar í hverri viku.

Hver eining er 1,3 metrar á breidd og rúmlega 4 metrar að hæð.

Næstu verkefni í meðferðarkjarna eru þakfrágangur, undirbúningur lokafrágangs í kjallara, innrétting efstu hæðanna og tengibrú yfir í Barnaspítala.

Uppsteypa rannsóknahúss er komin á fullt og unnið er að uppslætti og járnun á undirstöðum, ásamt því að hreinsun klappar og þrifalög eru í vinnslu.