Enska knattspyrnusambandið hefur kært úrvalsdeildarfélagið Nottingham Forest vegna hegðunar leikmanna og þjálfarateymis félagsins eftir tapið gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á laugardag, 1:0. Þá hefur Steven Reid úr þjálfarateyminu einnig…
Enska knattspyrnusambandið hefur kært úrvalsdeildarfélagið Nottingham Forest vegna hegðunar leikmanna og þjálfarateymis félagsins eftir tapið gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á laugardag, 1:0.
Þá hefur Steven Reid úr þjálfarateyminu einnig verið kærður vegna hegðunar sinnar í garð dómara leiksins eftir leik. Forest-menn voru allt annað en sáttir við sigurmark Liverpool á níundu mínútu uppbótartímans.