Séra Cecil Kristinn Haraldsson, fv. sóknarprestur, lést á hjúkrunarheimilinu Fossahlíð á Seyðisfirði 4. mars síðastliðinn, 81 árs að aldri. Cecil fæddist í Stykkishólmi 2. febrúar árið 1943. Foreldrar hans voru Haraldur Ísleifsson og Kristín Cecilsdóttir

Séra Cecil Kristinn Haraldsson, fv. sóknarprestur, lést á hjúkrunarheimilinu Fossahlíð á Seyðisfirði 4. mars síðastliðinn, 81 árs að aldri.

Cecil fæddist í Stykkishólmi 2. febrúar árið 1943. Foreldrar hans voru Haraldur Ísleifsson og Kristín Cecilsdóttir.

Cecil tók stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1962 og theol. kand frá Lundarháskóla árið 1980. Hann tók framhaldsnám í guðfræði og heimspeki við sama háskóla 1980-1983 og tók fil. kand. árið 1983. Tók lestrarpróf frá guðfræðideild Háskóla Íslands árið 1986.

Cecil starfaði sem kennari við Barnaskólann á Ísafirði 1963-64 og við Miðskólann í Stykkishólmi 1964-1970. Hann var skólastjóri Barna- og unglingaskólans á Laugum í Dalasýslu 1970-1971. Kennari við Víghólaskóla í Kópavogi 1971-1973 og skólastjóri Gagnfræðaskólans í Neskaupstað 1973-1974 og varð síðan kennari við Garðaskóla í Garðabæ 1974-1976.

Cecil var vígður þann 22. janúar árið 1984 í Dómkirkjunni í Lundi í Svíþjóð og varð prestur í Burlöv í Suður-Svíþjóð 1984-1986. Hann varð forstöðumaður öldrunarþjónustu á Akureyri árin 1986-1988 og prestur Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík frá ágúst 1988 til 1997. Cecil var settur sóknarprestur í Seyðisfjarðarprestakalli frá 1. júlí 1998 og skipaður frá 1. september 1999, þar sem hann starfaði til starfsloka.

Fyrri kona Cecils var Ólína Salome Torfadóttir. Börn þeirra eru Kristín Haralda og Haraldur Ísleifur. Eftirlifandi eiginkona er Kristín Guðveig Sigurðardóttir. Þau eiga eina dóttur, Þorbjörgu Ölmu. Stjúpdóttir Cecils og dóttir Kristínar er Guðlaug Vala Smáradóttir.

Cecil verður jarðsunginn frá Seyðisfjarðarkirkju 14. mars.