Merkjavörudrottning! Ýr Guðjohnsen segir að Íslendingar séu mjög hrifnir af Louis Vuitton-töskum og þær seljist vel í endursölu.
Merkjavörudrottning! Ýr Guðjohnsen segir að Íslendingar séu mjög hrifnir af Louis Vuitton-töskum og þær seljist vel í endursölu.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Á dögunum birti Ýr fróðlegt myndband á TikTok-síðu Attikk þar sem hún deildi skemmtilegum staðreyndum um Neverfull-töskuna frá Louis Vuitton. Ýr segir Neverfull-töskuna vera mest seldu töskuna í endursölu frá Louis Vuitton í heiminum, en Íslendingar …

Irja Gröndal

irja@mbl.is

Á dögunum birti Ýr fróðlegt myndband á TikTok-síðu Attikk þar sem hún deildi skemmtilegum staðreyndum um Neverfull-töskuna frá Louis Vuitton. Ýr segir Neverfull-töskuna vera mest seldu töskuna í endursölu frá Louis Vuitton í heiminum, en Íslendingar virðast þó halda meira upp á aðra tösku frá merkinu þó að Neverfull-taskan sé líka vinsæl hér á landi.

„Neverfull er mest selda taskan í endursölu frá þessu merki en hún er líka ofarlega á lista yfir vinsælustu töskurnar hjá Attikk. Hins vegar eru Keepall-töskurnar frá Louis Vuitton heldur vinsælli hjá okkur,“ segir Ýr.

Taska sem selst fljótt og örugglega á endursölumarkaði

Aðspurð segir Ýr kostina við Neverfull-töskuna vera hve rúmgóð hún er, en þar að auki passi hún við allt og flestir þekki þessa týpu. „Það er hægt að stilla böndin á hliðum töskunnar og breyta löguninni á henni, en eins og sýnt er í myndbandinu er líka hægt að snúa henni á röngunni! Neverfull-taskan er öruggur kostur fyrir þá sem eru að kaupa sína fyrstu tösku frá Louis Vuitton, enda selst hún fljótt og örugglega á endursölumarkaði,“ segir hún. „Taskan er sívinsæl og er hætt í fjöldaframleiðslu, en mér skilst að verið sé að tæma lagerinn af Neverfull-töskunum og að hún verði héðan í frá aðeins fáanleg eftir pöntunum þar sem kaupandi fer á lista, að minnsta kosti í einhverjum litum,“ bætir hún við.

Hvaða merki er vinsælast heilt yfir hjá ykkur?

„Við erum með svo ótrúlega fjölbreytt úrval af bæði gömlum og nýjum týpum af töskum að það er erfitt að segja til um það nákvæmlega hvaða týpa selst mest. En langvinsælasta merkið hjá okkur er Louis Vuitton. Þar á eftir er Gucci, en um þriðja sætið keppa svo Prada, Chanel og Burberry.“

Hvaða töskur eru mest seldar hjá ykkur?

„Mest seldu töskurnar hjá okkur eru held ég Keepall-taskan frá Louis Vuitton og þar á eftir Nylon-töskurnar frá Prada.“