Auglit er ásýnd, andlit, augsýn. Orðið verður auglits í eignarfalli, en „í orðasamböndum bregður fyrir eignarfallsmyndinni auglitis“, segir í Beygingarlýsingu

Auglit er ásýnd, andlit, augsýn. Orðið verður auglits í eignarfalli, en „í orðasamböndum bregður fyrir eignarfallsmyndinni auglitis“, segir í Beygingarlýsingu. Að standa augliti til auglitis við eitthvað þýðir að standa frammi fyrir e-u óþægilegu, en standa augliti til auglitis við einhvern: standa beint fyrir framan hann.