Salvör Nordal
Salvör Nordal — Morgunblaðið/Hari
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, íhugar að bjóða sig fram í embætti forseta Íslands í komandi kosningum. Hún segist ætla að gefa sér umhugsunarfrest til páska en á allra síðustu dögum hafi hún fundið fyrir auknum áhuga

Salvör Nordal, umboðsmaður barna, íhugar að bjóða sig fram í embætti forseta Íslands í komandi kosningum. Hún segist ætla að gefa sér umhugsunarfrest til páska en á allra síðustu dögum hafi hún fundið fyrir auknum áhuga. „Já, ég hafði satt að segja lítið velt þessu fyrir mér að þessu sinni, en finn nú á allra síðustu dögum aukinn áhuga og því hef ég ákveðið að taka mér tíma til að hugsa þetta fram að páskum.“

Þá segir Salvör að fólk hafi hvatt hana til þess að bjóða sig fram í þessum kosningum, en hún var orðuð við embættið fyrir síðustu kosningar: „Fólk hefur haft samband við mig nú eins og áður og auðvitað þykir manni vænt um að finna stuðning í þetta embætti.“

Í kosningunum 2016 var skorað á Salvöru að bjóða sig fram til embættisins en eftir að hafa hugsað málið alvarlega ákvað hún að bjóða sig ekki fram. „Þá var ég ekki tilbúin í framboð af ýmsum ástæðum. Hvort ég er tilbúin núna kemur í ljós.“

Hún segir að það hafi komið henni á óvart að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hafi ákveðið að hætta eftir átta ár. „Ég hefði gjarnan viljað að hann væri eitt kjörtímabil í viðbót.“