Tvenna Framherjinn Darwin Núnez skoraði 2. og 3. markið í gærkvöldi.
Tvenna Framherjinn Darwin Núnez skoraði 2. og 3. markið í gærkvöldi. — AFP/Michal Cizek
Liverpool bauð upp á sýningu er liðið heimsótti Spörtu frá Prag í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í gærkvöldi. Urðu lokatölur 5:1. Alexis Mac Allister kom Liverpool á bragðið með marki úr víti á 6

Liverpool bauð upp á sýningu er liðið heimsótti Spörtu frá Prag í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í gærkvöldi. Urðu lokatölur 5:1. Alexis Mac Allister kom Liverpool á bragðið með marki úr víti á 6. mínútu og Darwin Núnez bætti við tveimur mörkum á 25. og 45. mínútu. Sparta lagaði stöðuna með sjálfsmarki í upphafi seinni hálfleiks. Luis Díaz gerði hins vegar fjórða mark Liverpool á 53. mínútu og Dominik Szboszlai það fimmta á lokamínútunni.