[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Mér fannst dagurinn ótrúlega skemmtilegur. Þetta var dagur sem ég mun aldrei gleyma. Það var skemmtilegt allan daginn,“ segir Birgitta um fermingardaginn sinn í fyrra. „Ég fór í hárgreiðslu, ég var máluð og hárið á mér greitt

Mér fannst dagurinn ótrúlega skemmtilegur. Þetta var dagur sem ég mun aldrei gleyma. Það var skemmtilegt allan daginn,“ segir Birgitta um fermingardaginn sinn í fyrra.

„Ég fór í hárgreiðslu, ég var máluð og hárið á mér greitt. Þaðan fór ég beint í kirkjuna. Svo fór ég í fermingarsalinn og beið eftir gestunum.“

Í hvernig fötum fermdist þú?

„Ég var í hvítum kjól sem var mjög erfitt af því ég er mjög mikil subba. Ég þurfti að vera í svuntu þegar ég fékk mér að borða fyrir kirkjuna,“ segir Birgitta og hlær þegar hún rifjar upp atvikið. Sem betur fer sullaðist ekki á kjólinn sem Birgitta keypti í Cosmo.

Nammibarinn sló í gegn

„Við vorum með Kahoot sem pabbi og stjúpmamma mín gerðu. Allir voru mjög spenntir fyrir því. Þau lögðu mikla vinnu í að finna spurningar eins og hvaðan amma mín væri ættuð og fleiri spurningar sem ég vissi ekki einu sinni svörin við,” segir Birgitta og útskýrir að hægt sé að hala niður smáforritinu og spila í símanum. Í fermingunni voru einnig á borðum myndir af Birgittu síðan hún var lítil sem og fyrir ofan gestabókina, og ljósmyndakassi.

Nammibarinn skapaði einnig mjög góða stemningu að sögn Birgittu.

„Ég valdi nokkur uppáhaldsnammi og mamma valdi sum. Begga frænka mín sem er með BH hönnun kom með hugmyndina að hafa nammibar og ég var mjög spennt fyrir því. Yngri frændsystkinum mínum fannst æðislegt að hafa nammibar,“ segir Birgitta.

Fékk allt sem hún óskaði sér

Birgitta er að æfa körfubolta með ÍR sem hafði áhrif á draumagjöfina. „Ég fékk ferð til New York en ég er ekki ennþá búin að fara. Við erum að fara á körfuboltaleik en við eigum eftir að finna út hvernig við setjum hana saman,“ segir Birgitta sem ætlar í ferðina með föður sínum. Uppáhaldsliðið í NBA er einmitt New York-liðið New York Knicks.

Hún fékk fleiri skemmtilegar gjafir en segir að hún eigi auðvitað mjög stóra fjölskyldu. „Ég fékk sjónvarp og tölvu sem mig er búið að dreyma um síðan ég var tíu ára. Svo fékk ég mikið af peningum.“

Hvað gerðir þú við fermingarpeningana?

„Ég setti meirihlutann inn á bankabók. Svo er ég með sérreikning sem ég get tekið af og lagt inn á kortið mitt. Þar get ég líka safnað sjálf.“

Birgitta segir að það sé vissulega skrítin tilfinning að vera vera fermd en tilfinningin sé þó góð. Hún var búin að hlakka til lengi. „Þegar ég var lítil sagði ég alltaf þegar mig langaði í eitthvað stórt og ég gat ekki fengið gjöfina að mig langaði í hana í fermingargjöf. Þegar ég var tíu ára sagði ég að mig langaði í hest í fermingargjöf.“

Gult þema eins og persónuleikinn

Auður, móðir Birgittu, var að halda sína fyrstu fermingarveislu en hún á þrjú börn. Hún segir að þau, foreldrarnir, hafi ákveðið að leigja sal þar sem fjölskyldur þeirra beggja eru fjölmennar. Þegar Auður hafði lokið sér af með góðri aðstoð leit salurinn engan veginn út fyrir að vera ópersónulegur eins og stundum vill verða.

„Mér finnst gaman að skreyta og hafa allt í stíl, finna liti sem passa saman,“ segir Auður um listrænu hæfileikana. Hún játar þó að hún hefði kosið liti eins og bleikan og gylltan hefði hún fengið að ráða öllu. Það kom ekki til greina að sögn Birgittu.

„Gulur hefur verið uppáhaldsliturinn minn síðan ég var lítil. Ég er líka svo gul persóna. Fólk hefur alltaf sagt að ef ég væri litur þá væri ég gulur, ég er opin og tala mikið við fólk. Uppáhaldsblómin mín eru sólblóm og mig langaði að hafa sólblómaþema,“ segir Birgitta.

„Við urðum að finna liti sem pössuðu saman. Það var líka erfitt að finna liti sem pössuðu við sólblómin. Sólblóm eru oft svolítið appelsínugul. Ég pantaði öll sólblómin á netinu, á Shein. Ég hefði aldrei fundið svona mikið gult hér heima,“ segir Auður um ágæti þess að panta á netinu. Hún segir það einnig hafa verið hagstætt.

Auður ákvað að forgangsraða í hvað hún eyddi. „Ég pældi alveg í því hvernig getur maður sparað og haft þetta flott á sama tíma,“ segir Auður. Begga í BH hönnun er frænka Auðar og hjálpaði hún mikið til við skreytingarnar. Einnig nýttu þær sér þjónustu hennar. „Við merktum gulllitaða konfektmola með nafni Birgittu og með myndum af henni. Mér fannst það skemmtilegra en að merkja servéttur sem fólk þurrkar sér með eða tímir því eiginlega ekki,“ segir Auður.

Hún segir fólk hafi hrósað skreytingunum en líka hlegið að því hversu langt hún gekk. „Já mamma missti sig aðeins,“ sagði dóttir hennar við gesti í fermingunni. En Birgittu fannst það samt líka skemmtilegt eins og gestunum.

Fylgdi skreytingunum ekki mikið stress?

„Jú það var stress í gangi. Við náðum ekki að blása allar blöðrurnar upp. Ég pantaði 300 blöðrur eða eitthvað. Blöðrur gera ótrúlega mikið. Við þurftum að leigja tæki til að blása upp blöðrurnar til að vera sneggri.“

Notaði gamlan körfubolta í skreytingu

Fermingarborðið kom vel út. Þar var Auður með skraut ásamt veitingum. „Ég spreyjaði körfuboltann gylltan af því að Birgitta er að æfa körfubolta. Þetta var bara gamall körfubolti sem hún var hætt að nota. Svo skrifaði ég á hann Birgitta. Mér fannst þetta koma vel út að vinna með körfuboltann og gulan. Ég notaði líka Lakers-treyju af því hún er gul.

„Ég var með upphækkun á borðinu. Ég notaði kassa og setti dúk yfir. Ég notaði hvítt, ljóst gegnsætt efni til að skreyta með. Mér fannst mjög fallegt þegar maturinn var hátt uppi þó það hafi verið minna pláss á borðinu,“ segir Auður en í veislunni voru meðal annars kökur frá Önnu Konditori og gulir kleinuhringir.

Persónulegar myndir úr veislunni

Í stað þess að fara í hefðbundna fermingarmyndatöku mætti ljósmyndari í veisluna.

„Það heppnaðist mjög vel. Það náðust alveg ótrúlega fallegar myndir sem mér þykir einstaklega vænt um. Þetta eru ekki myndir sem eru uppstilltar. Birgita sagði sjálf að henni hefði fundist þetta mjög gaman og skemmtilegra en að stilla sér upp og reyna að vera venjuleg í myndatöku. Hún var ekki sátt við þetta fyrst en ég sagði við hana að þetta yrði miklu persónulegra.“

Er eitthvað sem þú myndir gera öðruvísi?

„Ég myndi panta meiri mat. Ég var með mikið af kökum en minna af réttum. Ég myndi örugglega vera fljótari að skreyta en mér fannst þetta alveg gaman,“ segir Auður og leggur áherslu á að fólk fái salinn sólahring fyrir veisluna. Það sé ekki gaman að skreyta í flýti eins og hún veit að fólk hefur lent í.