Evrópumeistararnir í þýska liðinu Magdeburg tryggðu sér í gærkvöldi sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta með 30:28-útisigri á Veszprém frá Ungverjalandi í Íslendingaslag. Var leikurinn hreinn úrslitaleikur um hvort liðið færi beint í átta liða úrslit
Evrópumeistararnir í þýska liðinu Magdeburg tryggðu sér í gærkvöldi sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta með 30:28-útisigri á Veszprém frá Ungverjalandi í Íslendingaslag. Var leikurinn hreinn úrslitaleikur um hvort liðið færi beint í átta liða úrslit. Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg og Janus Daði Smárason fjögur. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt. Hjá Veszprém skoraði Bjarki Már Elísson einnig eitt mark.