Anton Sveinn McKee sigraði í 100 metra bringusundi á bandarísku atvinnumótaröðinni Tyr Pro Swim í Chicago í fyrrinótt. Anton synti á 1:00,48 mínútum og var nálægt fimm ára gömlu Íslandsmeti sínu sem er 1:00,32 mínútur
Anton Sveinn McKee sigraði í 100 metra bringusundi á bandarísku atvinnumótaröðinni Tyr Pro Swim í Chicago í fyrrinótt. Anton synti á 1:00,48 mínútum og var nálægt fimm ára gömlu Íslandsmeti sínu sem er 1:00,32 mínútur. Anton var aftur á ferðinni í gær þegar hann keppti í undanrásum í 200 metra bringusundi, sinni aðalgrein. Þar varð hann þriðji á 2:15,18 mínútum en úrslitasundið fór fram seint í gærkvöld, eftir að blaðið fór í prentun.