— Morgunblaðið/Eggert
Fólk hélt ekki aftur af tilfinningunum þegar Palestínumenn á Íslandi gátu faðmað skyldmenni eftir ferðalag frá átakasvæðum á Gasa með viðkomu í Kaíró. Alls komu 72 einstaklingar til landsins í gær á grundvelli fjölskyldusameiningar og hafði þeim…

Fólk hélt ekki aftur af tilfinningunum þegar Palestínumenn á Íslandi gátu faðmað skyldmenni eftir ferðalag frá átakasvæðum á Gasa með viðkomu í Kaíró. Alls komu 72 einstaklingar til landsins í gær á grundvelli fjölskyldusameiningar og hafði þeim verið liðsinnt yfir landamærin til Egyptalands á dögunum af íslenskri sendinefnd. Starfi sendinefndar utanríkisráðuneytisins er nú lokið. » 6