Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, og Rasmus Höjlund, framherji Manchester United, voru í gær verðlaunaðir fyrir að skara fram úr í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í febrúarmánuði. Arsenal vann alla fjóra leiki sína í febrúar og það…
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, og Rasmus Höjlund, framherji Manchester United, voru í gær verðlaunaðir fyrir að skara fram úr í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í febrúarmánuði. Arsenal vann alla fjóra leiki sína í febrúar og það afskaplega sannfærandi, en markatalan í leikjunum fjórum var 18:2. Höjlund fór á kostum í fremstu víglínu hjá Man. United í mánuðinum þegar hann skoraði fimm mörk og lagði upp eitt til viðbótar í fjórum leikjum.