Hvað nú? Sýningin mun standa yfir til 28. apríl í Listasafni Reykjanesbæjar.
Hvað nú? Sýningin mun standa yfir til 28. apríl í Listasafni Reykjanesbæjar.
Opnunarhóf fyrir sýninguna Afbygging stóriðju í Helguvík með listamannateyminu Libiu Castro & Ólafi Ólafssyni verður haldið í dag klukkan 14 í Listasafni Reykjanesbæjar, en sýningin stendur til sunnudagsins 28

Opnunarhóf fyrir sýninguna Afbygging stóriðju í Helguvík með listamannateyminu Libiu Castro & Ólafi Ólafssyni verður haldið í dag klukkan 14 í Listasafni Reykjanesbæjar, en sýningin stendur til sunnudagsins 28. apríl.

Safnið býður öll velkomin á sýninguna, sem er verk í vinnslu og unnið í samstarfi og samtali Libiu & Ólafs við Töfrateymið, andstæðinga stóriðju í Helguvík, aðra umhverfisverndarsinna, hagfræðing, íbúa Reykjanesbæjar og nærsamfélaga og alþjóðlega sýningarstjórann og höfundinn Jonatan Habib Engqvist sem hefur starfað sem ritstjóri Ord&Bild frá árinu 2021.

Libia Castro & Ólafur Ólafsson hófu samstarf sitt í Hollandi árið 1997. Þau vinna þverfagleg samvinnuverkefni með vídeó, ljósmyndun, hljóðskúlptúr og margmiðlunar innsetningar. Libia & Ólafur fóru fyrir hönd Íslands á Feneyjatvíæringinn árið 2011 en þau hafa sýnt verk sín í almannarýmum í ólíkum borgum víða um Evrópu og haldið einkasýningar um heim allan.