Mörgum hefur orðið fótaskortur á áratugunum okkar. Síðasti áratugur aldar er sá tíundi , því níu eru liðnir. Sumum finnst þetta umhendis og vilja kalla 1990 og félaga níuna ,…

Mörgum hefur orðið fótaskortur á áratugunum okkar. Síðasti áratugur aldar er sá tíundi, því níu eru liðnir. Sumum finnst þetta umhendis og vilja kalla 1990 og félaga níuna, o.s.frv. En þá er það maðurinn sem sagður er kominn á þriðja áratuginn þótt hann sé orðinn 34. Á þristinum? Hann er reyndar á þeim fjórða.