Stockfish kvikmynda- og bransahátíð kynnir Evu Maríu Daniels-verðlaunin fyrir framúrskarandi kvikmyndagerð. Nýju verðlaunin, sem eru hugsuð fyrir upprennandi kvikmyndagerðarfólk, eru veitt í minningu íslensku kvikmyndagerðarkonunnar og…
Stockfish kvikmynda- og bransahátíð kynnir Evu Maríu Daniels-verðlaunin fyrir framúrskarandi kvikmyndagerð. Nýju verðlaunin, sem eru hugsuð fyrir upprennandi kvikmyndagerðarfólk, eru veitt í minningu íslensku kvikmyndagerðarkonunnar og framleiðandans Evu Maríu Daniels, sem lést í júní eftir erfiða baráttu við krabbamein. Vinningshafinn fær 1,5 milljónir íslenskra króna í verðlaunafé.