Pétur Örn Leifsson fæddist á Akureyri 4. apríl 1968. Hann var sonur hjónanna Ingibjargar Sigurðardóttur og Leifs Ragnarssonar. Þau skildu þegar Pétur var 7 ára.

Pétur Örn varð bráðkvaddur á heimili sínu 26. febrúar 2024. Útför hans fer fram í dag, 11. mars 2024, kl. 13.

Allt er hljótt,

ég heyri ekki í honum meir eða hitti.

Vinur minn í burtu tekinn, snöggt.

Er nú kominn undir bláan himin

og nýja sól.

Hann var fallegur, saklaus

og góður drengur.

Hugur hans var oftast

hreinn og beinn, en alltaf í núinu.

Stundum var veröldin

kvíðvænleg og óskiljanleg

fyrir honum, um leið öðrum

og mótvindar strangir.

Margar samverustundir og spor

hans sitja eftir í huga mínum um

ókomna tíð.

Góður vinur sem kenndi

mér margt um lífið

og tilveruna er nú farinn

í sumarlandið.

Hvíl í friði, elsku Pétur.

Megi Guð og góðar vættir umvefja þig undir bláum himni og nýrri sól.

Kveðja,

Guðmundur.