Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordagskrá sína með tónleikum annað kvöld, miðvikudaginn 13. mars, kl. 20. Jazz-rokksveitin Gammar mun þá koma fram á Björtuloftum í Hörpu og með því fagna útgáfu nýs efnis, en sveitin gaf nýverið út sína fimmtu plötu

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með vordagskrá sína með tónleikum annað kvöld, miðvikudaginn 13. mars, kl. 20. Jazz-rokksveitin Gammar mun þá koma fram á Björtuloftum í Hörpu og með því fagna útgáfu nýs efnis, en sveitin gaf nýverið út sína fimmtu plötu.

Meðlimir Gamma eru Stefán S. Stefánsson, saxófónn og flauta, Björn Thoroddsen, gítar, Þórir Baldursson, píanó og orgel, Bjarni Sveinbjörnsson, bassi, og Sigfús Óttarsson, trommur.