— Morgunblaðið/Eggert
Mikill viðbúnaður var á Suðurlandi í gærmorgun eftir að tilkynning barst um að bíll hefði sést fara niður um ís í vesturhluta Þingvallavatns. Hátt í 100 viðbragðsaðilar komu að verkefninu. Þyrla og drónar flugu yfir svæðið en auk þess var sérsveit…

Mikill viðbúnaður var á Suðurlandi í gærmorgun eftir að tilkynning barst um að bíll hefði sést fara niður um ís í vesturhluta Þingvallavatns. Hátt í 100 viðbragðsaðilar komu að verkefninu. Þyrla og drónar flugu yfir svæðið en auk þess var sérsveit ríkislögreglustjóra í viðbragðsstöðu ásamt dróna- og kafarahópi. Leit var hætt um miðjan dag og töldu viðbragðsaðilar útilokað að bíll hefði farið í vatnið.