Jens Pétur Jensen
Jens Pétur Jensen
Stjórnmálamenn, sem vilja beita sér fyrir betra interneti, ættu að skuldbinda sig til að viðhalda kjarnaþáttum hins frjálsa og opna internets.

Jens Pétur Jensen

Árið 2024 verður mikilvægt hvað stafræna stefnumótun varðar. Þá fá stjórnmálamenn í Evrópu tækifæri til að forgangsraða í lagasetningu fyrir internetið til næstu fimm ára á nýju þingi ESB. Markmiðum á borð við „sýndarheim“, „yfirlýsingu um framtíð internetsins“ og „stafrænan áratug og réttindi“ hefur einkum verið haldið á lofti af yngri stjórnmálamönnum.

Með þetta í huga, leggja CENTR-samtökin* fram eftirfarandi meginreglur til að vernda stafræna framtíð Evrópu á komandi áratug:

Eftirfarandi meginreglur eru byggðar á áratugareynslu ofangreindra lykilinnviða netsins sem reka höfuðlénin og nafnaþjónustuna (DNS) fyrir þau. DNS-kerfið er rótgróið hugbúnaðarkerfi netsamskiptareglna í hjarta innviðar internetsins. Það kortleggur notendavæn (læsileg) lén og stýrir þeim yfir á töluleg (IP) vistföng. DNS er notað af sérhverri þjónustu, sem er annaðhvort sýnileg notendum eins og vefsíðum og tölvupósti, eða ósýnileg á bak við tjöldin, eins og spjallkerfi, IP-símar o.fl.

Mikilvægt er að þekkja muninn á léni annars vegar og vefsíðu eða tölvupósti hins vegar. Skráningarstofur höfuðléna stýra t.d. .is, .de, .dk, og .com og eru ekki hýsingarfyrirtæki, þ.e.a.s. þær hýsa því hvorki vefsíður né tölvupóst. Það gera hins vegar skráningaraðilar, sem eru endursöluaðilar léna.

Skráningarstofur höfuðléna, eins og t.d. ISNIC.is, DENIC.de, Norid.no, DkHostmaster.dk og aðrir tæknilegir netinnviðir, búa yfir áratugalangri reynslu í netþjónustu við almenning, sem við viljum gjarnan miðla til stjórnmálamanna og annarra sem hafa áhuga á að setja internetinu reglur.

Flestir taka þessum innviðum sem sjálfsögðum hlut, bæði hvað löggjöf og stefnumótun varðar – jafnvel þegar netinnviðirnir eru beinlínis í brennidepli. Þannig truflar sumt í löggjöf landanna getu tæknilegra innviða til að sinna nauðsynlegri þjónustu fyrir stafrænt samfélag (netið). DNS-kerfið sem slíkt myndar afar stöðugt kerfi og því verður næsta kynslóð stefnumótenda að líta á netið og einstaka hluta þess í heild sinni og leggja sitt af mörkum til að styrkja það, en forðast setningu reglna sem veikja það.

Í stafrænni stefnu ESB er brýn þörf fyrir meiri þekkingu um þá staðla og þær samskiptareglur sem mynda hryggjarstykki internetsins og sem byggja verður á hér eftir sem hingað til. Án þessa sterka og stöðuga kjarna, sem hefur gert internetinu kleift að vaxa og dafna og verða ómissandi hluti af samfélaginu, er framtíð internetsins sett í óvissu.

Stjórnmálamenn og -konur sem vilja beita sér fyrir betra interneti, stundum kallað „Next Generation Internet“, ættu að grípa tækifærið og skuldbinda sig til að viðhalda kjarnaþáttum hins frjálsa og opna internets. Þetta er það sem hefur gert upplýsingasamfélaginu kleift að þróast og mun áfram færa ávinninginn af nettengdum heimi til allra. Í þessu skyni bjóða CENTR-samtökin eftirfarandi meginstef til leiðbeiningar fyrir stefnumótun á næsta kjörtímabili ESB, sem hefst 2024:

Samvirkni: Stefnumótunaraðilar ESB/ESA ættu að viðurkenna opna internetstaðla formlega og stuðla að notkun þeirra með opinberum innkaupum til að styðja við ókeypis „næstu kynslóðar internet“ – net sem er opið öllum.

Næsta kynslóð netsins verður að byggjast á opnum stöðlum. Góður árangur og mikill sveigjanleiki internetsins varð aðeins mögulegur fyrir tilstuðlan opinna staðla. Opnir internetstaðlar tryggja samvirkni og samþýðanleika milli mismunandi þjónustu á netinu og stuðla þannig að vali notenda og aukinni samkeppni.

Stjórnvöld ættu að viðurkenna opna staðla þegar þróun nýrrar tækni er rædd. Allir hagsmunaaðilar, þar með talið hið opinbera, ættu að leggja áherslu á þátttöku í þróun opinna staðla.

Næsta kynslóð netsins mun standa á öxlum núverandi innviða netsins, svo sem DNS, Internet Protocol Suite og annarra staðla og samskiptareglna sem voru þróaðar og er viðhaldið innan núverandi alþjóðlegra staðla- og samhæfingaraðila, aðila sem allir byggjast á fjölhagsmunalíkaninu (e. multi stakeholder model). Samstarf sem gerir öllum kleift að taka þátt í þróun netsins, óháð uppruna eða búsetu.

Næsta kynslóð internetsins verður að tryggja áframhaldandi rekstrarsamhæfi og samræmi (samþýðanleika) við núverandi grunnhluta nauðsynlegra netinnviða, sem hafa sannað getu sína til að viðhalda skalanlegu interneti í gegnum mörg þróunarstig þess. Til þess að viðhalda frjálsu og opnu interneti og getu þess til að þróast áfram, án þess að útiloka nokkurn, er samvirkni við núverandi innviði netsins algerlega nauðsynleg.

Stuðst var við greinina

„Paving the path towards the internet of the future: why should EU policymakers care about existing internet infrastructure?“ Polina Malaja, www.CENTR.org, 02.12.2023.

[* Í CENTR eru öll helstu höfuðlén (e. Top Level Domain Evrópu) og .com, sem Verisign rekur, er aukaaðili.]

Höfundur er framkvæmdastjóri Internets á Íslandi hf. (ISNIC).

Höf.: Jens Pétur Jensen