Valsmenn eru komnir í viðræður við Gylfa Þór Sigurðsson um að hann leiki með þeim á komandi tímabili. Þetta staðfesti Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, við ruv.is í gær. Gylfi æfir nú með Val sem er í æfingabúðum á Spáni en hann hafði áður verið á æfingum með Fylki
Valsmenn eru komnir í viðræður við Gylfa Þór Sigurðsson um að hann leiki með þeim á komandi tímabili. Þetta staðfesti Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, við ruv.is í gær. Gylfi æfir nú með Val sem er í æfingabúðum á Spáni en hann hafði áður verið á æfingum með Fylki. Gylfi lék síðast með Lyngby í Danmörku í byrjun nóvember en rifti samningnum í janúar og hefur síðan einbeitt sér að endurhæfingu á Spáni.