Að gera á hlut (eldra mál: hluta) e-s merkir að gera e-m illt, gera e-m e-ð til miska. Að ganga á hlut e-s merkir sama en líka að skerða eign eða rétt e-s
Að gera á hlut (eldra mál: hluta) e-s merkir að gera e-m illt, gera e-m e-ð til miska. Að ganga á hlut e-s merkir sama en líka að skerða eign eða rétt e-s. (Mergur málsins telur líklegt að það fyrra (gera) sé leitt af því síðara (og eldra): ganga.) Að ganga á rétt e-s þýðir svo að beita e-n órétti. Og það er ganga, ekki gera.