Chelsea hafði betur gegn Newcastle United, 3:2, í 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla á Stamford Bridge í Lundúnum í gærkvöldi.
Chelsea er áfram í 11. sæti deildarinnar, nú með 39 stig, og er einu stigi á eftir Newcastle í 10. sæti. Chelsea á þá leik til góða.
Nicolas Jackson, Cole Palmer og Mykhailo Mudryk skoruðu mörk Chelsea. Alexander Isak og Jacob Murphy skoruðu fyrir Newcastle.
Palmer hefur nú skorað 11 mörk og lagt upp átta til viðbótar í 24 leikjum í deildinni fyrir Chelsea á tímabilinu. Isak er kominn með 12 mörk í 20 deildarleikjum hjá Newcastle.