Sigríður Á. Andersen
Sigríður Á. Andersen
Átta sóttu um embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem auglýst var í febrúar. Umsóknarfrestur rann út 7. mars, en meðal umsækjenda er Sigríður Á. Andersen, lögmaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra

Átta sóttu um embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem auglýst var í febrúar. Umsóknarfrestur rann út 7. mars, en meðal umsækjenda er Sigríður Á. Andersen, lögmaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra. Aðrir umsækjendur eru Esther Finnbogadóttir, leiðandi sérfræðingur, Guðrún Ögmundsdóttir skrifstofustjóri, Jóhann Ágústsson, viðskiptafræðingur/ráðgjafi, Matthías G. Pálsson, fastafulltrúi Íslands hjá FAO, WFP og IFAD í Róm, Sigríður Kristbjörnsdóttir, löggiltur endurskoðandi, fjármála- og verkefnastjóri, Sigurður H. Helgason forstjóri og Tómas Brynjólfsson, settur ráðuneytisstjóri. Guðmundur Árnason lét af embætti ráðuneytisstjóra um áramótin og Tómas, einn umsækjenda, var settur í embættið til 31. mars.