Snæfell þarf að fara í umspil við lið úr 1. deild í baráttunni um að halda sæti sínu í úrvalsdeild kvenna í körfubolta. Það varð ljóst eftir að liðið tapaði fyrir Þór frá Akureyri á útivelli, 84:72, í gærkvöldi

Snæfell þarf að fara í umspil við lið úr 1. deild í baráttunni um að halda sæti sínu í úrvalsdeild kvenna í körfubolta. Það varð ljóst eftir að liðið tapaði fyrir Þór frá Akureyri á útivelli, 84:72, í gærkvöldi.

Þá er einnig ljóst að deildarmeistarar Keflavíkur og Fjölnir mætast í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar. Fjölnir vann Val, 81:78, á útivelli og hefur nú unnið þrjá leiki í röð. Þá vann Njarðvík 99:72-heimasigur á Stjörnunni. » 22