Norðurárdalur Vegagerðarmenn vinna við holufyllingar á dögunum.
Norðurárdalur Vegagerðarmenn vinna við holufyllingar á dögunum. — Ljósmynd/Vegagerðin
Sólin hækkar á lofti og það styttist í vorið. Þetta hefur áhrif á vegum landsins. Holur myndast í bundnu slitlagi og Vegagerðin hefur nú þegar tilkynnt um þungatakmarkanir á nokkrum vegum. Í blaðinu á mánudag var sagt frá varasömu ástandi Vestfjarðavegar (60) í Reykhólasveit og Dölum

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Sólin hækkar á lofti og það styttist í vorið. Þetta hefur áhrif á vegum landsins. Holur myndast í bundnu slitlagi og Vegagerðin hefur nú þegar tilkynnt um þungatakmarkanir á nokkrum vegum.

Í blaðinu á mánudag var sagt frá varasömu ástandi Vestfjarðavegar (60) í Reykhólasveit og Dölum. Þar hefur slitlag farið mjög illa og burðarlag gefið sig á löngum köflum. Hefur þessum köflum verið breytt í malarvegi og verður þetta ástand óbreytt fram á sumar.

Þungatakmarkanir eru í gildi víða í vegakerfinu, sér í lagi á Vesturlandi og Vestfjörðum en einnig á Hringveginum (1) á Suður- og Suðausturlandi. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Vegir eru illa farnir á mörgum köflum eftir veturinn. Búast má við að settar verði sjö tonna þungatakmarkanir á nokkra kafla Vestfjarðavegar og á Reykhólavegi.

Ferðum Baldurs fjölgað?

Jafnvel má búast við sjö tonna þungatakmörkunum víðar næstu daga. Upplýsingar um þungatakmarkanir má nálgast á umferdin.is. Til að koma til móts við flutningabíla er til skoðunar að fjölga ferðum með Breiðafjarðarferjunni Baldri, segir Vegagerðin.

Skemmdir á vegunum stafa fyrst og fremst af gömlu burðarlagi sem er farið að gefa sig, miklum þungaflutningum og of litlu viðhaldi undanfarin ár. Slitlagið er víða sprungið sem verður til þess að vatn á auðveldara með að renna niður í burðarlagið og situr í efra lagi vegarins. Þegar frost fer úr veginum gengur vatnið upp og skemmir burðarlagið enn frekar. Á stórum köflum er slitlag farið af vegum, sér í lagi á Vestfjörðum.

Starfsfólk Vegagerðarinnar vinnur að bráðabirgðaviðgerðum þar sem hægt er. Sú vinna hófst seinni hluta febrúar og er unnið að holuviðgerðum víða um land.

Hins vegar þarf að bíða eftir því að frost og bleyta fari úr vegum áður en hægt er að klára bráðabirgðaviðgerðir. Útlit er fyrir áframhaldandi þíðu næstu vikur og því standa vonir til að hægt verði að ráðast í viðgerðir fljótlega. Til stendur að fræsa upp verstu kaflana sem verða klæddir að nýju næsta sumar.

Vegfarendur eru hvattir til að aka varlega og hafa varann á, segir Vegagerðin. Hægt er að tilkynna um holur í vegum í gegnum ábendingakerfi á vegagerdin.is. Þá er smellt á flipann „Hafðu samband“. Á sama stað er hægt að senda inn tjónstilkynningu. Þá fer málið í hefðbundið ferli þar sem metið er hvort bótaskylda sé fyrir hendi.

Höf.: Sigtryggur Sigtryggsson