Hugi Halldórsson og Ásdís Ragna Valdimarsdóttir.
Hugi Halldórsson og Ásdís Ragna Valdimarsdóttir. — Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson
Ásdís Ragna Valdimarsdóttir og Hugi Halldórsson hafa verið ráðin til Samkaupa. Ásdís Ragna tekur við stöðu markaðsstjóra Kjör- og Krambúðanna og Hugi stöðu viðskiptastjóra Vildarkerfis Samkaupa. Í tilkynningu frá Samkaupum kemur fram að Ásdís Ragna…

Ásdís Ragna Valdimarsdóttir og Hugi Halldórsson hafa verið ráðin til Samkaupa. Ásdís Ragna tekur við stöðu markaðsstjóra Kjör- og Krambúðanna og Hugi stöðu viðskiptastjóra Vildarkerfis Samkaupa.

Í tilkynningu frá Samkaupum kemur fram að Ásdís Ragna kemur frá auglýsingastofunni Hér & Nú þar sem hún starfaði sem verkefnastjóri. Áður starfaði Ásdís einnig við stafræna markaðssetningu hjá fyrirtækinu JoDís og hjá Arion banka. Hugi hefur áralanga reynslu af markaðsstörfum og starfaði áður sem deildarstjóri hjá Vodafone, markaðsdeild Play og síðustu ár sem markaðsstjóri Ísorku.