Kanadíska knattspyrnukonan Tanya Boychuk hefur samið við sænska úrvalsdeildarfélagið Vittsjö. Kemur Boychuk frá Þrótti úr Reykjavík, þar sem hún lék á síðasta tímabili. Boychuk, sem er 23 ára gömul, lék alla 23 leiki Þróttar í Bestu deildinni á síðasta tímabili og skoraði í þeim sex mörk
Kanadíska knattspyrnukonan Tanya Boychuk hefur samið við sænska úrvalsdeildarfélagið Vittsjö. Kemur Boychuk frá Þrótti úr Reykjavík, þar sem hún lék á síðasta tímabili.
Boychuk, sem er 23 ára gömul, lék alla 23 leiki Þróttar í Bestu deildinni á síðasta tímabili og skoraði í þeim sex mörk. Vittsjö hafnaði í fimmta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og sjötta sæti tímabilið þar á undan.