Frestur til að skila skattframtali rennur út á miðnætti. Helga Lilja Aðalsteinsdóttir, verkefnastjóri framtalsaðstoðar hjá Skattinum, segir það ganga vel hjá landsmönnum að skila. Í gær höfðu 56% einstaklinga skilað framtali, eða 193 þúsund

Frestur til að skila skattframtali rennur út á miðnætti. Helga Lilja Aðalsteinsdóttir, verkefnastjóri framtalsaðstoðar hjá Skattinum, segir það ganga vel hjá landsmönnum að skila. Í gær höfðu 56% einstaklinga skilað framtali, eða 193 þúsund. Er það betra en á sama tíma í fyrra, þegar 53% höfðu skilað. Gerir Helga ráð fyrir því að 75% af framtölum skili sér fyrir lok almenns skilafrests.