Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
Að vera í góðu símasambandi snýst ekki eingöngu um hentugleika. Það er fyrst og fremst öryggismál, bæði innan sem utan heimilis.

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir

Síminn hringir. Þú tekur hann upp, strýkur fingrinum eftir skjánum og svarar. Þú leggur símann upp að eyranu og ræðir við þann sem hringdi í þig.

Þetta er flestum okkar orðið eðlislægt en hér á landi eru margir sem geta ekki svarað símanum heima hjá sér eða á svæðinu í kringum heimilið sökum lélegs símasambands. Það að virkja rafræn skilríki krefst þess einnig að viðkomandi sé í símasambandi og því þurfa sumir að ferðast frá heimili sínu til þess að vinna að ýmsu sem margir aðrir telja sjálfsagt. Að vera í góðu símasambandi snýst ekki eingöngu um hentugleika. Það er fyrst og fremst öryggismál, bæði innan sem utan heimilis.

Ein af fyrstu fyrirspurnum mínum á Alþingi varðaði kortlagningu á lögheimilum þar sem lítið eða lélegt símasamband væri. Niðurstaðan var sú að 1% heimila hér á landi var í litlu eða engu símasambandi. Í kjölfarið var gerður samningur milli Neyðarlínunnar og fjarskiptafyrirtækja um uppbyggingu á fjarskiptasendum utan markaðssvæða, sem var frábært skref í rétta átt. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi gerðu svo skýrslu um stöðu fjarskiptamála á Vesturlandi, sem kom út í byrjun árs. Niðurstaða hennar var að fara þyrfti í úrbætur á mörgum stöðum á farneti, Tetrakerfi og ljósleiðara á Vesturlandi.

Þá er ekki einungis mikilvægt að huga að heimilum fólks hvað gott símasamband varðar. Á vegum landsins eru margir staðir þar sem er lítið eða ekkert símasamband. Það hefur margoft skapað erfiðar aðstæður vegna slysa eða annarra vandræða sem koma upp. Það var því gott að sjá fréttirnar um að samið hefði verið um að koma upp 24 fjarskiptasendum við stofnvegi á Vestfjörðum. Sú aðgerð skiptir miklu máli fyrir öryggi fólks á vegum landsins sem og þeirra sem búa í nágrenni við sendana. Á meðan við fögnum því höldum við áfram að þrýsta á frekari uppbyggingu við stofnvegi um allt land, tengivegi og á heimilum fólks. Ég fagna öllum þeim framförum sem eiga sér stað í fjarskiptamálum á Íslandi.

Það skiptir máli að vera í góðu sambandi.

Höfundur er þingmaður Framsóknar.