40 ára Alexía er Reykvíkingur og uppalin í miðbænum en í 14 ár bjó hún í Hamborg. Hún býr nú í Hlíðunum. Alexía er lífeindafræðingur að mennt og starfar hjá erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítalans

40 ára Alexía er Reykvíkingur og uppalin í miðbænum en í 14 ár bjó hún í Hamborg. Hún býr nú í Hlíðunum. Alexía er lífeindafræðingur að mennt og starfar hjá erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítalans.


Fjölskylda Kærasta Alexíu er Harpa Rún Eysteinsdóttir, f. 1988, hjúkrunarnemi. Systkini Alexíu eru Margrét Lilja Björnsdóttir, f. 1969, Pétur Húni Björnsson, f. 1971, og Sara Stefanía Björnsdóttir, f. 1989. Foreldrar Alexíu eru hjónin Björn Grímsson, f. 1950, tannsmiður, og Ólöf Jóna Jensdóttir, f. 1952, starfsmaður Icelandair. Þau eru búsett í Reykjavík.