Tveir Albert hefur aðeins leikið tvo leiki undir stjórn Åge Hareide.
Tveir Albert hefur aðeins leikið tvo leiki undir stjórn Åge Hareide. — Morgunblaðið/Eggert
Albert Guðmundsson, sóknarmaður Genoa, verður að óbreyttu í íslenska landsliðinu sem mætir Ísrael í umspilinu fyrir EM í Búdapest 21. mars. Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, staðfesti við RÚV í gær að Åge Hareide landsliðsþjálfara væri heimilt að…

Albert Guðmundsson, sóknarmaður Genoa, verður að óbreyttu í íslenska landsliðinu sem mætir Ísrael í umspilinu fyrir EM í Búdapest 21. mars. Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, staðfesti við RÚV í gær að Åge Hareide landsliðsþjálfara væri heimilt að velja Albert þar sem kæra vegna meints kynferðisbrots hefði verið felld niður. Albert hefur ekki leikið með landsliðinu síðan í júní 2023 vegna þessa. Hópurinn verður tilkynntur á morgun.