Landsmenn standa með Grindvíkingum.
Landsmenn standa með Grindvíkingum.
Neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi fyrir íbúa Grindavíkur lauk á þriðjudag og alls safnaðist rúm 51 milljón króna. í tilkynningu á vef Rauða krossins kemur fram að rúmum 47 milljónum króna hafi verið úthlutað til Grindvíkinga í 542 styrkjum

Neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi fyrir íbúa Grindavíkur lauk á þriðjudag og alls safnaðist rúm 51 milljón króna. í tilkynningu á vef Rauða krossins kemur fram að rúmum 47 milljónum króna hafi verið úthlutað til Grindvíkinga í 542 styrkjum.

Fram kemur að hægt sé að sækja um fjárstuðning til og með 19. mars, en 20. mars fer svo síðasta úthlutunin fram og þá verður farið yfir síðustu umsóknirnar og afganginum af fénu komið til Grindvíkinga.

Hægt er að sækja um fjárstuðning í gegnum þjónustumiðstöðvar fyrir Grindvíkinga. Þjónustumiðstöð er staðsett í Tollhúsinu, Tryggvagötu 19 í Reykjavík, opið virka daga milli klukkan 10-17, og í Reykjanesbæ á Smiðjuvöllum 8. Þar er opið á mánudögum, þriðjudögum og föstudögum klukkan 14-17.

Ef fólk er í bráðum fjárhagsvanda er því bent á að bóka viðtal hjá félagsráðgjöfum Grindavíkurbæjar í síma 420-1100.